KF-Mezzi, fótboltalið krakkanna á Vorvöllum, hefur verið stofnað og er farið að spila sína fyrstu leiki. Þá flytur nýr strákur í bæinn og allt breytist. Er Tómas kominn með samkeppni um athygli Kristínar? Og tekst þeim að komast upp úr deildinni svo þau geti loksins spilað á móti gamla liðinu sínu?KF Mezzi er sería af fótboltabókum eftir Daniel Zimakoff. Serían fjallar um vinina Tómas, Sölva og Berg og gleði þeirra og vandamál með þjálfara, félaga og andstæðinga. Þeir taka þátt í að stofna fótboltaliðið KF-Mezzi, sem er blandað lið, því það eru líka stelpur með í liðinu.